Alcoa Fjarðaál
Við leitum að duglegu og áreiðanlegu fólki til sumarstarfa í framleiðslu í kerskála, skautsmiðju og steypuskála. Störfin eru fjölbreytt og geta veitt góðan undirbúning fyrir framtíðarstörf. Unnið er á tólf tíma vöktum sem gefa ágætar tekjur og drjúgan frítíma. Öryggiskröfur í álverinu eru mjög strangar. Starfsmenn hefja störf á tímabilinu frá 1. maí til 1. júní og þurfa sumarstarfsmenn að geta unnið samfellt í a.m.k. tvo mánuði. Umsóknarfrestur er til og með 15. mars. Öllum umsóknum verður svarað að ferlinu loknu.